top of page

Kynning á leirmótunarnámskeiðum

Updated: May 14

Ég starfa við kennslu sjónlista/myndmenntar í Lundarskóla á Akureyri og hef kennt í grunnskóla síðan 2009. Ég hef unnið með leir og leirmótun síðan ég sjálf var í grunn- og framhaldsskóla. Þegar ég fór í meistaranám í kennslu list- og verkgreina ákvað ég að finna leiðir fyrir mig að elta gamlan draum og vera ákveðnari í minni eigin listsköpun. Leirinn er sá listmiðill sem ég hef alltaf snúið til aftur og aftur og ég finn mína útrás þar fyrir sköpun.


Nú þegar ég hef verið að vinna að þróun að minni sköpun hef ég fundið þörf í samfélaginu að halda námskeið í leirmótun. Ég hef margra ára reynslu í kennslu nemenda á grunnskólaaldri í list- og verkgreinum og mín áhersla er á myndlist/sjónlistir, en hef kennt myndlist, textíl, hönnun og smíði. Ég hef einnig haldið námskeið fyrir fullorðna í leirmótun og stafrænni sköpun.


Nú býð ég upp nokkur mismunandi námskeið á vinnustofu minni á Þúfu 46, sem er í Gránufélagsgötu 46, Akureyri.

Hér er hlekkur á skráningu á námskeið


Laugardagsnámskeið:

Eitt skipti í handmótun í steinleir

Hægt að gera 2-3 hluti, mála og skreyta með leirlitum og undirglerung.

Hlutirnir brenndir og glerjaðir með glæru eða lit að eigin vali og hægt að sækja u.þ.b. 1-2 vikum seinna.

Kennt á laugardögum

10:00-13:00/13:30

Hámarksfjöldi 10

Verð 12.000 kr.


4 vikna námskeið í leirmótun:

Farið yfir grunnaðferðir í handmótun með leir, fjölbreyttar aðferðir til skreytingar, einfalda aðferð við gerð diska með leirrennslu og glerjun með glerungum (1240*).

Samtals 10 klst.

Kennt 4 þriðjudaga í röð

19:00-21:30

Síðasta skiptið er 18:30-21:30

Hámarksfjöldi 10

Verð 32.000 kr.


Helgarnámskeið í micro-raku:

Handmótaðir litlir hlutir í nokkrar mismunandi tegundir af leir, þurrkað og brennt samdægurs. Glerjað og brennt með microkiln (pottur í örbylgjuofn) næsta dag og notað raku brennslu til að fá sérstaka áferð á munina. Þessi aðferð er tilraunakennd og oft óútreiknanleg en gefur skemmtilega möguleika.

Samtals 6 klst.

Kennt laugardag og sunnudag

10:00-13:00

Hámarksfjöldi 10

Verð 30.000 kr.

Með námskeiðsgjöldum fylgir lítill pottur fyrir örbylgjuofn.


Leirrennsla:

Námskeið í leirrennslu fyrir byrjendur. Kennt grunnaðferðir við leirrennslu og afrennslu. Glerjun u.þ.b. viku seinna.

Samtals 11 klst.

Kennt laugardag, sunnudag

10:00-14:00

Laugardagur (glerjun)

10:00-13:00

Hámarksfjöldi 4

Verð 34.000 kr.


Myndir af laugardagsnámskeiði:


Myndir af 4 vikna leirmótunarnámskeiði


Myndir af micro-raku námskeiði

Myndir af byrjendanámskeiði í leirrennslu


 
 
 

Comments


3548942915

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

©2024 Elín Berglind Skúladóttir.

Búið til í gegnum Wix.com

bottom of page