Minni leirsins - samtal
Dagana 8.–9. ágúst 2026 sýndi ég verk mín í Deiglunni á Akureyri. Sýningin er afrakstur tilrauna síðustu missera þar sem ég hef unnið með leir, glerunga, efni, form og áferð.
Fyrir rúmu ári fór ég að skoða íslenskan leir af meiri forvitni og kanna möguleika hans í glerungagerð. Ég fékk innblástur frá listamönnum sem hafa unnið með íslensk jarðefni og fór sjálf að safna leir, vinna úr honum og prófa á ólíka vegu. Það hefur leitt mig áfram í sífellt fleiri tilraunir með efni, blöndur og brennslur.
Íslenski leirinn er áberandi á sýningunni en þar mætast líka keyptur leir, glerungar og önnur efni. Það sem heillar mig mest er samtalið sem verður til á milli þeirra – og óvissan um hvað kemur í ljós þegar ofninn er opnaður.
Minni leirsins - samtal
Deiglan, Akureyri
8.–9. ágúst 2026 · kl. 14–17
Fjallað er nánar um sýninguna á Kaffinu.

Fuglar til styrktar Börnum með krabbamein
Á hverju ári geri ég litlar rjúpur úr leir sem ég rakubrenni og sel til styrktar Börnum með krabbamein, áður Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna.
Rjúpurnar eru mótaðar og unnar hver fyrir sig og fá sitt einstaka yfirbragð í rakubrennslunni. Þar fær eldurinn, reykurinn og ferlið sjálft að hafa áhrif á lokaútkomuna og því verða engar tvær alveg eins.
Verkefnið sameinar tvennt sem skiptir mig miklu máli – sköpun og möguleikann á að láta hana verða til góðs. Með sölu rjúpanna safnast styrkur til starfs Barna með krabbamein - styrktarfélags og um leið fær hver lítil rjúpa að fljúga af stað á nýtt heimili.
Þetta er lítið verkefni sem er mér sérstaklega kært og stendur mér nærri.

Garn í gangi bollar
Síðan í ársbyrjun 2025 hef ég búið til bolla fyrir prjóna-sælkeraverslunina Garn í gangi. Það sem einkennir þá er garndokkan og formið, enginn er nákvæmlega eins, allt handrennt og handmálað með silkiþrykki.
