Kynning á leirmótunarnámskeiðum
Updated: Aug 15
Ég starfa við kennslu sjónlista/myndmenntar í Lundarskóla á Akureyri og hef kennt í grunnskóla síðan 2009. Ég hef unnið með leir og leirmótun síðan ég sjálf var í grunn- og framhaldsskóla. Þegar ég hóf meistaranám í kennslu list- og verkgreina 2021 ákvað ég að finna leiðir fyrir mig að vera ákveðnari í minni eigin listsköpun. Leirinn er sá listmiðill sem ég hef alltaf snúið til aftur og aftur og ég finn mína útrás þar fyrir sköpun. Undanfarin 5 ár hef ég sjálf mikið unnið við leirrennslu og farið á fjölda námskeiða til að dýpka þekkingu og bæta við reynslu mína, bæði hérlendis og erlendis.
Ég hef margra ára reynslu í kennslu nemenda á grunnskólaaldri í list- og verkgreinum og mín áhersla er á myndlist/sjónlistir, en hef kennt myndlist, textíl, hönnun og smíði. Síðustu tvö ár hef ég haldið fjölbreytt námskeið í leirmótun og leirrennslu á vinnustofu minni í Gránufélagsgötu og í Samlaginu - Sköpunarverkstæði.
Ég býð upp nokkur mismunandi námskeið á vinnustofu minni á Þúfu 46, sem er í Gránufélagsgötu 46, Akureyri.
Hér er hlekkur á skráningu á námskeið
Laugardagsnámskeið:
Eitt skipti í handmótun í steinleir
Hægt að gera 1-2 hluti, mála og skreyta með leirlitum og undirglerung.
Hlutirnir brenndir og glerjaðir með glæru eða lit að eigin vali og hægt að sækja u.þ.b. 1-2 vikum seinna.
Kennt á laugardögum/eða eftir samkomulagi
9:00-13:30 - eða eftir samkomulagi.
Hámarksfjöldi 12
Verð 16.000 kr.
Kynning á leirrennslu - 2 skipti
Tvö skipti í leirrennslu. Farið yfir grunnatriði við leirrennslu og afrennslu í fyrra skiptið gert 1-2 hluti og málað með glerungum í seinna skiptið.
Yfirleitt kennt fimmtudagskvöld 19-21 og sunnudagsmorgunn 10-11/12.
Hámarksfjöldi 4
Verð 16.000 kr.
4 vikna námskeið í leirmótun:
Farið yfir grunnaðferðir í handmótun með leir, fjölbreyttar aðferðir til skreytingar, einfalda aðferð við gerð diska með leirrennslu og glerjun með glerungum (1222*).
Kennt sem 4 vikna námskeið, 3 klst. í einu - Samtals 12 klst.
Virkur dagur kl.18:00-21:00
Hámarksfjöldi 12
Verð 34.000 kr.
Helgarnámskeið í micro-raku:
Handmótaðir litlir hlutir í nokkrar mismunandi tegundir af leir, þurrkað og brennt samdægurs. Glerjað og brennt með microkiln (pottur í örbylgjuofn) næsta dag og notað raku brennslu til að fá sérstaka áferð á munina. Þessi aðferð er tilraunakennd og oft óútreiknanleg en gefur skemmtilega möguleika.
Samtals 10 klst.
Kennt laugardag og sunnudag
9:00-14:00
Hámarksfjöldi 10
Verð 30.000 kr.
Leirrennsla:
Námskeið í leirrennslu fyrir byrjendur. Kennt grunnaðferðir við leirrennslu og afrennslu. Glerjun u.þ.b. viku seinna.
Samtals 12 klst.
Kennt laugardag, sunnudag
9:00-14:00
Laugardagur (glerjun)
10:00-13:00
Hámarksfjöldi 4
Þetta er einnig kennt sem 4 vikna námskeið 3 klst í einu.
Verð 34.000 kr.
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur í leirrennslu.
Námskeið í leirrennslu fyrir þá sem hafa komið á byrjendanámskeið þar sem farið er yfir grunnaðferðir og unnið flóknari form, meðal annars að renna aðeins stærri form, lokuð form, kynnst sgraffito, útskurð í leðurharðan leir og fullunnið hluti áður en þeir fara í brennslu.
Kennt sem 6 skipta námskeið 4 klst. í einu. Samtals 24 klst.
Hámarksfjöldi 4
Verð 52.000 kr.
Myndir af laugardagsnámskeiði:
Myndir af 4 vikna leirmótunarnámskeiði
Myndir af micro-raku námskeiði
Myndir af byrjendanámskeiði í leirrennslu



Comments