top of page

Logo hönnun - 6. bekkur

4 hours ago
3 min read

Í þessu verkefni kynnast nemendur grafískri hönnun og læra að þróa sitt eigið persónulega lógó frá fyrstu hugmynd til fullunninnar afurðar. Unnið er eftir skipulögðu hönnunarferli þar sem áhersla er lögð á innblástur, hugmyndavinnu, skissugerð, litafræði, stafræna úrvinnslu og framleiðslu.

Verkefnið felst í að nemendur hanni lógó sem endurspeglar þeirra eigin áhugamál, persónuleika eða eitthvað sem skiptir þá miklu máli í lífinu. Ég tala um kjarna þeirra, hver þeirra kjarni sé. Í hönnuninni þurfa þeir jafnframt að vinna með eigið nafn, skammstafi eða upphafsstaf og samþætta hann myndmáli lógósins.


Hönnunarferlið

Nemendur byrja á að skoða fjölbreytt lógó og ræða hvernig form, litir, letur og tákn eru notuð til að miðla ákveðnum skilaboðum og skapa sjónræna ímynd. Þeir leita sér innblásturs og útbúa hugmyndaborð þar sem þeir safna saman myndum, formum, litum og hugmyndum sem tengjast þeirra eigin áhugasviði.


Í framhaldinu vinna nemendur skissur á pappír og prófa mismunandi útfærslur. Þeir skoða hvernig hægt er að samþætta

bókstafi, tákn og myndræna þætti þannig að úr verði heildstætt og persó

nulegt lógó. Sérstök áhersla er lögð á litafræði og að nemendur velji litasamsetningu sem hæfir hönnuninni, styður við hugmyndina og skapar sjónrænt jafnvægi.

Nemendur velja síðan eina hugmynd til frekari úrvinnslu og gera frumgerð (prótótýpu) sem þeir yfirfara og betrumbæta. Að lokum færa þeir hönnunina yfir í teikniforritið Procreate á iPad, þar sem þeir vinna lokaútfærsluna, fínstilla form, liti og samsetningu og undirbúa lógóið fyrir prentun.


Frá hönnun til framleiðslu

Þegar lokaútfærslan er tilbúin fer lógóið í „framleiðslu“. Hver nemandi fær þrjú lítil eintök af eigin lógói prentuð á límmiðapappír. Nemendur plasta síðan yfir límmiðana til að bæta yfirborðsgæði þeirra og auka endingu. Þá eru nemendur að læra að gefa út í myndaformi jpeg eða PNG til að prenta út og senda mér í tölvupósti áður en við prentum í lit.

Þannig fá nemendur að upplifa allt ferlið frá fyrstu hugmynd að áþreifanlegri lokaafurð sem þeir hafa sjálfir hannað og fullunnið.


Námsmarkmið

Sköpun

  • Að þróa persónulega og sjálfstæða hugmynd út frá eigin áhugamálum og því sem skiptir nemandann máli.

  • Að vinna markvisst eftir hönnunarferli frá innblæstri til fullunninnar afurðar.

  • Að samþætta bókstafi, tákn, form og liti í heildstæða hönnun.

  • Að nýta litafræði og meðvitað litaval til að styrkja sjónræna framsetningu.

  • Að öðlast færni í hefðbundinni teikningu og stafrænni myndvinnslu.

Greining og úrvinnsla

  • Að skoða og greina hvernig lógó miðla upplýsingum, hugmyndum og persónulegri ímynd.

  • Að þróa hugmyndir með skissum, tilraunum, mati og endurbótum.

  • Að meta hvernig form, bókstafir og litasamsetningar vinna saman.

  • Að þjálfa gagnrýna hugsun, lausnaleit og hæfni til að taka meðvitaðar hönnunarákvarðanir.

  • Að sýna vandvirkni og þrautseigju við úrvinnslu og frágang.

Menning og umhverfi

  • Að kynnast grafískri hönnun og hlutverki hennar í daglegu lífi og samfélagi.

  • Að öðlast skilning á því hvernig tákn, litir og letur miðla merkingu.

  • Að efla sjónrænt læsi með því að skoða, túlka og ræða hönnun í umhverfinu.

  • Að átta sig á tengslum listsköpunar, hönnunar, tækni og framleiðslu.


Áherslur verkefnisins

Megináherslan er á listræna hugsun, sjálfstæða hugmyndavinnu, litafræði, sjónrænt læsi og skapandi lausnaleit. Nemendur læra að góð hönnun byggir á meðvituðum ákvörðunum þar sem form, litir og tákn vinna saman að því að miðla ákveðinni hugmynd.

Verkefnið gefur nemendum tækifæri til að vinna með eigin áhugamál og persónulega tjáningu innan ákveðins hönnunarramma. Þeir þjálfast í að þróa hugmyndir, prófa mismunandi lausnir, endurskoða eigin vinnu og fylgja henni eftir alla leið að fullunninni vöru.

Lokaafurðin er þrír persónulegir límmiðar, en ekki síður mikilvægt er það skapandi ferli, sú þekking og sú færni sem nemendur öðlast á leiðinni.


Dæmi um hönnunarferli og lokaútfærslu af lógóum sem nemendur hafa hannað hjá mér:


 
 
 

Comments


3548942915

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

©2024 Elín Berglind Skúladóttir.

Búið til í gegnum Wix.com

bottom of page